Velkomin á heimasíðu Stíganda ehf.

Stígandi ehf., Húnabraut 29, 540 Blönduósi, var stofnaður 1. maí 1947 og er fyrirtækið í hópi elstu byggingarfyrirtækja á landinu. Fyrirtækið er alhliða byggingafyrirtæki en hefur á síðustu árum lagt áherslu á smíði vandaðra innréttinga sem að stærstum hluta hafa verið smíðaðar fyrir aðila í öðrum landshlutum. Fyrirtækið leggur áherslu á persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Meirihluti starfsmanna hefur unnið í áratugi hjá fyrirtækinu og með reynslu þeirra og þekkingu tryggjum við gæði framleiðslunnar.


Á heimasíðunni er hægt að nálgast upplýsingar um fyrirtækið og verk þess síðustu árin. Auk þess sem birtar eru til fróðleiks og skemmtunar myndir af ýmsum verkefnum og félagslífi starfsmanna í gegnum árin.  

Ef þú hefur sérstakar óskir um útfærslu verkefna, verð eða óskar eftir tilboði í verk munum við leggja okkur fram um að svara fljótt og örugglega, hvort sem er í síma 452 4123 eða tölvupósti á netfangið einar@stigandihf.is.


"Við byggjum á reynslunni"

Trésmiðjan Stígandi hf., Húnabraut 29 - 540 Blönduós. Sími 452 4123

.: Keyrt af Vefumsýslukerfi Habilis :.