Innihurðir

Innihurðir í karmi og rennihurðir eru framleiddar eftir máli, spónlagðar,sprautulakkaðar eða með harðplasti. Óþrjótandi möguleikar eru varðandi litaval og viðartegundir. Stígandi hefur viðurkenningu Mannvirkjastofnunar vegna smíði á hurðum með allt að 60 mínútna brunamótstöðu. Hafið samband og fáið tilboð í nýjar og vandaðar hurðir.