Innréttingar – innihurðir – nýbygginar – endurbætur – sérsmíði
Stígandi ehf., Húnabraut 29, 540 Blönduósi, var stofnaður 1. maí 1947 og er fyrirtækið í hópi elstu byggingarfyrirtækja á landinu. Fyrirtækið er alhliða byggingafyrirtæki en hefur á síðustu árum lagt áherslu á smíði vandaðra innréttinga sem að stærstum hluta hafa verið smíðaðar fyrir aðila í öðrum landshlutum. Fyrirtækið leggur áherslu á persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Meirihluti starfsmanna hefur unnið í áratugi hjá fyrirtækinu og með reynslu þeirra og þekkingu tryggjum við gæði framleiðslunnar.
Á heimasíðunni er hægt að nálgast upplýsingar um fyrirtækið og verk þess síðustu árin. Auk þess sem birtar eru til fróðleiks og skemmtunar myndir af ýmsum verkefnum og félagslífi starfsmanna í gegnum árin.
Ef þú hefur sérstakar óskir um útfærslu verkefna, verð eða óskar eftir tilboði í verk munum við leggja okkur fram um að svara fljótt og örugglega, hvort sem er í síma 452 4123 eða í tölvupósti á einar@stigandihf.is